Aðsend grein:  

Mér finnst best að búa á Akranesi. Hér er ég fædd og uppalin, menntaði mig erlendis og hef búið víða, en þegar ég flutti aftur heim kom aldrei annað til greina en að búa á Akranesi. Þar er fólkið mitt, góðir skólar og leikskólar, náttúruperlur til útivistar, stutt í allt, fjölbreytt íþróttalíf og kjöraðstæður til að ala upp börn. Ég hef líka ferðast víða, en hér er allt sem ég þarf.

Akranes er 20 mínútna bær, sem þýðir að það ætti að taka innan við 20 mínútur að sækja alla þjónustu gangandi, s.s. í skóla, íþróttir, vinnu eða þjónustu. Það eru lífsgæði að mínu mati að geta hjólað og gengið til vinnu og að þessu sé hugað í skipulagi framtíðarinnar. Þetta sést t.a.m. vel í nýrri hönnun á endurnýjaðri Kirkjubraut en þar er einnig gert ráð fyrir áningarstöðum fyrir fjölskylduna til að njóta útiveru og leiks. En það nægir ekki að horfa á eina götu í einu þegar við fjölgum ferðamöguleikum, eflum umferðaröryggi, bætum aðgengi og aukum öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Heildstæð sýn þarf að vera til staðar til að auka möguleika íbúa á Akranesi til að nýta sér virkan ferðamáta, göngu eða hjólreiðar, við að komast örugg á milli staða og þessi heildstæða sýn þarf að vera leiðarljós í hvert sinn sem við leggjum eða lögum götur og stíga bæjarins.

Strandlengjan sem sérstaðan í náttúrunni

Strandlengjan meðfram Akranesi er ein af okkar helstu sérstöðum og gæti orðið eitt sterkasta aðdráttarafl bæjarins, en við þurfum að klára að tengja hana saman. Ég fæ oft fyrirspurnir frá gestum sem koma inn í bæinn og spyrja um góðar göngu-og hlaupaleiðir. Þá er gott að geta bent á göngustíginn meðfram Langasandi og út á Sólmundarhöfða, sem og fallega stíginn við Krókalón, en því miður vantar enn töluvert upp á að gönguleiðin meðfram allri strandlengju Akraness verði samtengd og heildstæð. Því verkefni verðum við að halda áfram með það að markmiði að hægt verði að ganga á einum heildstæðum göngustíg meðfram allri strandlengju Skagans, t.d. frá Leyni alla leið að Elínarhöfða, með viðkomu á fallegum áningar- og útsýnisstöðum á leiðinni. Við höfum nú þegar lokið góðum hlutum á þessari leið, en mikilvægt er að halda þessu verkefni áfram með lokatakmarkið fyrir framan okkur. 

Íþrótta-og heilsutengd ferðaþjónusta

Margir hafa talað um möguleika Akraness í ferðaþjónustu í gegnum árin. Nú er loks von á hóteli í endurbótum á gamla Landsbankahúsinu sem fróðir telja einmitt okkar næsta og besta möguleika til uppbyggingar í þessari atvinnugrein og tækifæri fyrir fyrirtæki sem eru nú þegar í bænum að skapa samráðsgrundvöll í markaðssetningu og framsetningu á alls kyns “ferðapökkum”. Þessi uppbygging ætti einnig að skapa möguleika fyrir ný fyrirtæki að spretta upp s.s. kaffihús, veitingastaði og ýmis konar afþreyingu. En það er ekki síður og kannski fyrst og fremst notkun og aðsókn okkar Skagamanna sem festir slíka þjónustu í sessi og breiðir út boðskapinn.

Sjálf hef ég talað fyrir möguleikum okkar í heilsueflandi og íþróttatengdri ferðaþjónustu, en nú þegar eru hér nokkrir vísar að slíku, kannski án þess að við gerum okkur grein fyrir því,  og má þar nefna Kotið sauna og Guðlaug við Langasand. Þá hafa Sigurjón Ernir og hans fólk hjá UltraForm staðið fyrir hlaupum og keppnum í samstarfi og samvinnu við Akraneskaupstað með tilheyrandi fólksfjölda inn í bæinn heilu og hálfu dagana. Einnig  var hér áður keppt í “Álmanninum” sem hafði algjöra sérstöðu í þríþraut og mætti svo sannarlega skoða að endurvekja, en sú keppni sameinaði öll okkar helstu kennileiti og náttúruperlur með því að hjóla upp að Akrafjalli, ganga og hlaupa á Háahnúk, hjóla aftur niður að Langasandi og synda meðfram strandlengjunni. Þá eru ótalin öll íþróttamótin s.s. Í knattspyrnu, sundi, fimleikum, golfi  og fleiri greinum sem vara í nokkra daga með tilheyrandi fjölgun í bænum með komu keppenda og fjölskyldna þeirra sem sækja ýmsa þjónustu.

En það eru ekki endilega allir á því að vilja keppa, það er líka heilsuefling að taka þátt. Ég hef orðið vör við að fleiri og fleiri utanaðkomandi gestir hafi uppgötvað t.d. Akrafjallið og golfvöllinn okkar svo eitthvað sé nefnt. Þá verð ég að nefna viðburð sem Sjóbaðsfélag Akraness hefur staðið fyrir á Írskum dögum, Helgasund, þar sem gestir frá sjósundsfélögum á höfuðborgarsvæðinu koma og taka þátt og synda tæpan kílómetra í sjónum frá bryggju að Guðlaugu. Það væri hægt að gera meira úr slíkum viðburðum t.d. setja saman einhvers konar “pakka” þar sem fyrirtæki í bænum kæmu að með inneignum eða afsláttarmiðum. Hér er það fyrst og síðast einkaframtakið sem getur komið góðum hlutum af stað, en stuðningur bæjaryfirvalda þarf sannarlega að vera til staðar.

Sterkari saman

Það sem hér hefur verið talið upp byggir mikið á samstarfi frumkvöðla, framsækinna einstaklinga og stuðningi kaupstaðarins, hvort sem er í formi beins fjárstyrks, samráðsgrundvallar, vilyrðis um samstarf og þjónustu eða nýtingu mannvirkja, ásamt forgangsröðun við ákvarðanatöku.

Það erum við fólkið, bæði sem frumkvöðlar og þátttakendur, sem gerum góðan bæ betri. Höldum áfram og bætum við það sem við kunnum og gerum vel!

En við þurfum að gera þetta saman. Við erum sterkari saman. Þannig verður gott Akranes best!

Anna Sólveig Smáradóttir. 

Höfundur er sjúkraþjálfari, fyrirtækjaeigandi á Akranesi,  varabæjarfulltrúi, og skipar 4.sæti á lista Samfylkingarinnar í komandi sveitarstjórnarkosningum

XS-Sterkari saman!