Aðsend grein:  

Fasteignagjöld eru lögbundinn tekjustofn sveitarfélaga og samanstanda af fasteignaskatti, lóðarleigu og þjónustugjöldum sem tengjast fasteignum t.d. fráveitu- og vatnsgjöld) Þau eru ásamt útsvari og framlögum úr Jöfnunarsjóði burðarás í fjármögnun sveitarfélaga.

Helstu einkenni fasteignagjalda eru litlar sveiflur á milli ára og eru því áreiðanleg tekjulind. Fasteignamat er uppfært reglulega og álagningarreglur skýrar, sem gerir sveitarfélögum kleift að skipuleggja rekstur og fjárfestingar til lengri tíma. Sveitarstjórnir hafa svigrúm til að ákveða skatthlutföll innan lagaramma og geta þannig mótað eigin tekjustefnu.

Af hverju eru fasteignagjöld svona mikilvæg?

Fasteignagjöld eru mikilvæg fyrir sveitarfélög enda standa þau undir stórum hluta þeirrar þjónustu sem íbúar nota daglega, leik- og grunnskóla, félagsþjónustu, skipulags- og byggingarmálum, umhverfis- og sorphirðuþjónustu og viðhaldi gatna og stíga. Þetta er þjónusta sem sveitarfélög verða að veita óháð efnahagsástandi, og því er mikilvægt að tekjustofninn sé stöðugur.

Hins vegar verður að hafa í huga að með hækkandi fasteignamati hækka tekjur sveitarfélaga án þess að kostnaður sveitarfélagsins af veittri þjónustu hækki. Því er það hlutverk sveitarstjórnar að gæta hófs við ákvörðun um álagningarprósentu fasteignagjalda hverju sinni. 

Í sveitarfélagi með sterka fjárhagsstöðu, eins og Hvalfjarðarsveit, geta fasteignagjöld tryggt áframhaldandi uppbyggingu og þjónustu, skapað svigrúm til lækkunar gjalda ef vilji er til og verið lykilþáttur í að laða að nýja íbúa og fyrirtæki með stöðugum rekstri og góðum innviðum.

Íbúahreyfingin telur mikilvægt að sveitarfélög nýti fjárhagslegt svigrúm sitt til að létta undir með íbúum þegar aðstæður leyfa. Lækkun fasteignagjalda myndi ekki aðeins bæta stöðu heimilanna heldur einnig styrkja samkeppnishæfni sveitarfélagsins, laða að nýja íbúa og stuðla að jákvæðri byggðaþróun. Jafnframt myndi lækkun fasteignagjalda skapa hagstæðari rekstrarskilyrði fyrir ferðaþjónustu, styðja við staðbundna atvinnustarfsemi og auka aðdráttarafl sveitarfélagsins sem áfangastaðar. Með því að skapa hagstæðari skilyrði fyrir íbúa er unnt að efla samfélagið til lengri tíma án þess að veikja þjónustu sveitarfélagsins. Jafnframt dregur lækkun fasteignagjalda úr þrýstingi á verðbólgu og vaxtahækkanir

Íbúahreyfingin telur einnig mikilvægt að afsláttur af fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega, sem nú er tekjutengdur, verði endurskoðaður. Þrátt fyrir að sumir lífeyrisþegar búi við góðar tekjur er til staðar hópur sem hefur mjög takmörkuð fjárráð. Íbúahreyfingin telur að unnt sé að veita þessum hópi meiri ívilnanir en nú er gert.

Með ábyrgri fjármálastjórn og skynsamlegri nýtingu tekjustofna er unnt að skapa jafnvægi milli traustrar þjónustu og hóflegra álaga á íbúa. Íbúahreyfingin telur að tíminn sé núna til að stíga það skref og lækka fasteignagjöld í þágu samfélagsins alls.

Vignir Már Sigurjónsson

Höf. skipar 3. sæti á lista Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit