Aðsend grein:  

Á laugardag kjósum við okkur bæjarstjórn hér á Akranesi. Undirritaður mun þar með ljúka ferli sínum sem bæjarfulltrúi þegar ný bæjarstjórn tekur við.

Í pistli mínum „Hvað á ég að kjósa“ fór ég yfir hugleiðingar mínar hvað ætti að ráða því hvað ég og hugsanlega fleiri ættum að kjósa. Vissulega var hugur minn að halda áfram en þannig atvikaðist það ekki. Hef heyrt í mörgum sem fannst þessi niðurstaða ekki sanngjörn. En svona er pólitíkin og við því er ekkert að gera. Margir hafa spurt hvort ég sé ekki fúll út af þessu og hvað ég ætli nú að kjósa. Jú vissulega varð ég fúll en það hefur engan tilgang að vera það til lengdar. Ég hef í starfi mínu sem bæjarfulltrúi litið á það sem skyldu mína að horfa alltaf á hvað er bænum mínum fyrir bestu í öllum málum burt séð frá allri pólitík. 

Á ferli mínum sem bæjarfulltrúi hef ég kynnst öðrum bæjarfulltrúum og starfað með þeim að hagsmunum bæjarins okkar. Verið bæði í minnihluta og meirihluta. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkur tími og oftast skemmtilegur. En ég ætla ekki núna að rekja þau árin. Nú þarf að ákveða hvað á að kjósa. Og þar sem ég vil bæjarfélagi mínu það besta þá mun ég kjósa þann lista sem hefur á að skipa þeim einstakling sem ég treysti best til að  stjórna og leiða nýjan meirihluta næstu fjögur árin a.m.k. Ég er kannski smá hlutdrægur en tel mig hafa aðeins innsýn í málið. Að koma inn sem nýr oddviti, án reynslu sem bæjarfulltrúi og taka að sér að leiða meirihlutann á síðasta kjörtímabili var mikil áskorun. Örugglega margir sem höfðu efasemdir en ég hafði alla trú á að þetta færi vel. Við vorum í sterkum meirihluta sem var einbeittur að tryggja góðan rekstur og halda áfram þeirri uppbyggingu sem í gangi var. Er við tókum við fyrir um fjórum árum var bjartsýni á að ytri aðstæður yrðu okkur hagfeldar. Nú í lok kjörtímabilsins þegar maður horfir aftur þá er ekki hægt að segja að ytri aðstæður hafi verið okkur hagfeldar, frekar þungar auk þess sem mikið af framkvæmdum voru í gangi sem ekki var hægt að stoppa. En útúr þessu tímabili erum við komin með góða heildar niðurstöðu, flottur meirihluti undir forustu Lífar Lárusdóttur. Líf Lárusdóttir á stóran hluta í því að útkoman er eins og hún er. Það hefur verið skemmtilegt ferðalag að fylgjast með henni í návígi takast á við þetta verkefi.

Frá því að vera algjörlega reynslulaus og nú sem fullkomin leiðtogi og tilbúinn að koma okkur áfram næstu árin. Frá mínum bæjardyrum séð þá er hún traustsins verð að fá mitt atkvæði og hvet ég eindregið til þess að þú kjósandi góður horfir til þess sama og undirritaður og setjir X við D.

Einar Brandsson.

Kjósandi á Akranesi.