Aðsend grein:  

Mér hefur þótt ótrúlega vænt um að fá að starfa í umboði íbúa í bæjarstjórn Akraness síðustu ár. Það er ekki sjálfgefið að vera treyst til að taka þátt í að móta samfélagið sitt og ég finn fyrir miklu þakklæti fyrir að hafa fengið að leggja mitt af mörkum við það verkefni.

Það hefur verið bæði gefandi, krefjandi og ánægjulegt að sjá þá miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað hér á Akranesi. Við höfum byggt upp og bætt aðstæður í leik- og grunnskólum, styrkt íþróttaaðstöðuna okkar og unnið að því að skapa betra samfélag fyrir börn, fjölskyldur og íbúa á öllum aldri. Það eru verkefni sem skipta miklu máli, ekki bara í dag heldur til framtíðar.

Samtal, virðing og samvinna 

Ég vil líka segja að mér hefur þótt samstarfið í bæjarstjórninni gott. Þótt við séum ekki alltaf sammála þá hef ég upplifað gott samtal, virðingu og samvinnu við samstarfsfólk mitt úr báðum hinna flokkanna í bæjarstjórninni. Sama á við um allt það fólk sem hefur komið inn í Skóla- og frístundaráð og til bæjarstjórnar með hugmyndir, ábendingar eða einfaldlega vilja og kjark til að gera gott samfélag betra. Það skiptir máli að við getum rætt málin saman af virðingu, því þannig náum við bestum árangri sem skilar sér beint til samfélagsins hér.

Öflugt samfélag

„Á Akranesi eru bara ónýtar götur“. Setning sem ég hef heyrt í gegnum tíðina og mikið á göngu minni um bæinn síðustu daga til að færa fólki rós og stefnuskrá Samfylkingarinnar á Akranesi. Jú, vissulega er hægt að segja um margar göturnar að þær þarfnist viðhalds og endurbóta, en Akranes er nefnilega svo miklu meira en umræða um holur í götum eða einstök mál dagsins. Hér er öflugt samfélag, sterkur mannauður og ótrúleg tækifæri. Ég þreytist ekki á að segja eftirfarandi hluti; hér alast börn upp í góðu samfélagi, hér blómstrar íþrótta- og menningarlíf sem tengir okkur saman. Hér er gott að búa á öllum stigum lífsins!!

Horfum til framtíðar 

Það er líka ástæðan fyrir því að ég býð mig áfram fram fyrir Samfylkinguna. Ég trúi á stefnumálin okkar, ég hef gengið í hús og hitt fólk, ég hef hlustað á raddir íbúa, þær segja mér hvað vantar, hvað er ekki gert, hvað er gert, hvað er gott og hvað er slæmt. Ég rétti fólki rós og blöðung með okkar helstu stefnumálum. Stefnumálum sem segja að ég stend fyrir því að vilja gera gott betra. Ég trúi á gott samstarf í framtíðinni við fólk og flokka. Ég trúi á samfélag sem heldur áfram að byggja upp sterka grunnþjónustu, styður við fjölskyldur, börn og ungmenni og horfir til framtíðar með ábyrgð, samvinnu og metnað að leiðarljósi.

Ég elska Akranes og trúi því einlæglega að okkar bestu dagar séu framundan.

En eins og skáldið og rokkari Íslands, Rúnar Júlíusson, orti og söng: „Það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig.“

Jónína Margrét Sigmundsdóttir:

Höfundur er starfandi bæjarfulltrúi og skipar 2. sætið á lista Samfylkingarinnar á Akranesi.