Aðsend grein:
Við sem stöndum að Íbúahreyfingunni eigum það sameiginlegt að við erum ný í pólitík og komum ekki fram fyrir hönd hefðbundinna flokka.

Markmið okkar er að byggja upp sterkt og glæst samfélag í Hvalfjarðarsveit þar sem góð þjónusta og aukin lífsgæði fara saman. Sveitarfélagið okkar býr yfir einstökum kostum, til að mynda fallegri náttúru, fjölbreyttu atvinnulífi og ríkum samfélagsanda, og við viljum tryggja að þessir styrkleikar nýtist sem best til framtíðar.
Við leggjum áherslu á fjölbreytt og ábyrgt atvinnulíf sem skapar raunveruleg tækifæri fyrir íbúa. Við viljum styðja jafnt við rótgróin fyrirtæki, nýsköpun og smærri rekstur. Sérstaklega viljum við auðvelda ferðaþjónustu og sprotafyrirtækjum að hasla sér völl, enda liggja þar umtalsverð tækifæri til framtíðar. Við þurfum að víkka sjóndeildarhringinn þegar kemur að nýjum atvinnutækifærum.
Við erum ekki á móti atvinnuuppbyggingu, þvert á móti teljum við hana lykilþátt í sterkri framtíð sveitarfélagsins. Ásókn sumra aðila til að nota fjörðinn okkar sem tilraunastofu getur hæglega haft þau áhrif á vistkerfi fjarðarins þar sem við íbúar töpum trúverðugleika og öllu því sem stendur okkur næst.
Umhverfisvernd þýðir ekki að ekkert sé hægt að gera, heldur að við tökum upplýstar og ábyrgar ákvarðanir: stöldrum við, hugsum og metum áhrif áður en lagt er af stað.
Í samstarfi við fyrirtæki viljum við koma á raunvöktun umhverfisþátta sem yrði almenningi aðgengileg. Með því eflum við gagnsæi, traust og sameiginlega ábyrgð á náttúru og umhverfi. Í samtölum við stóriðjuna á Grundartanga er greinilegur áhugi á að bæta þessi samskipti við íbúa og eru þau til í að leggja sitt af mörkum með raunvöktun.
Við viljum tryggja sterka og aðgengilega grunnþjónustu fyrir okkur öll, hvort sem um er að ræða skóla, félagsþjónustu eða aðstöðu til íþrótta og tómstunda. Við viljum jafnframt gera eldri borgurum hærra undir höfði með auknu framboði á félagsstarfi, bættri aðstöðu og markvissari stuðningi, enda er virk þátttaka og félagslegt öryggi lykilatriði góðra lífsgæða.
Við viljum einnig efla menningu og listir, enda styrkja þær sjálfsmynd samfélagsins, tengja fólk saman og auka lífsgæði allra aldurshópa.Við teljum mikilvægt að efla samtal, samstarf og traust, bæði innan sveitarfélagsins og við nágrannasveitarfélög, enda felast þar fjölmörg tækifæri sem nýtast okkur öllum.
Kraftur og kjarkur unga fólksins á lista Íbúahreyfingarinnar er einstakur og sýnir okkur að framtíðin er í öruggum höndum. Samstarf skiptir miklu máli og það þarf að vinna yfir línur fyrir hag íbúa sveitarfélagsins.
Við trúum því að með skýrri sýn og samvinnu getum við áfram byggt upp Hvalfjarðarsveit sem eftirsóknarverðan stað til að búa og starfa í, fyrir okkur öll og komandi kynslóðir.
Baldur Þór Ketilsson:
Höf. skipar 2. sæti á lista Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit










