Toyota á Íslandi og Bílaverkstæði Hjalta á Akranesi hafa gert með sér samkomulag að Bílaverkstæði Hjalta verður viðurkenndur þjónustuaðili Toyota á Íslandi.

Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota á Íslandi og Kristmundur Einarsson framkvæmdastjóri Bílaverkstæði Hjalta skrifuðu undir samning þess efnis í dag.  

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Frá vinstri á myndinni: Björgvin Njáll Ingólfsson framkvæmdastjóri þjónustusviðs Toyota á Íslandi, Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota á Íslandi, Kristmundur Einarsson framkvæmdastjóri, Hilmir Hjaltason verkstjóri fólksbíladeildar, Þorvaldur Sveinsson verkstjóri atvinnubíladeildar og Róbert Örn Andrésson verkstæðisformaður Bílaverkstæði Hjalta.

„Við erum mjög ánægð með að vera orðin viðurkennd sem þjónustuaðili Toyota á Íslandi og teljum að samningurinn muna auka þjónustu við Vestlendinga alla. Viðurkenningin er ekki síst gæðastimpill á fyrirtækið og þá vinnu sem unnin hefur verið með starfsfólkinu síðustu misseri, en mikil vinna hefur verið lögð í að bæta vinnuaðstöðu starfsfólks og uppfæra gæðaferla. Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi,“ segir Kristmundur Einarsson framkvæmdastjóri Bílaverkstæði Hjalta.

Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota á Íslandi er mjög ánægður að Bílaverkstæði Hjalta hafi nú bæst í hóp viðurkenndra þjónustuaðila Toyota á Íslandi. „Við viljum að viðskiptavinir Toyota á Íslandi geti leitað til viðurkenndra þjónustuaðila í heimabyggð enda er þjónusta við viðskiptavini okkar mjög mikilvæg. Við óskum eigendum og starfsfólki Bílaverkstæði Hjalta til hamingju og hlökkum til samstarfsins,“ segir Úlfar forstjóri Toyota á Íslandi.

Kristmundur Einarsson og Úlfar Steindórsson handsala samninginn. 

s
s
s