Aðsend grein: 

Sveitarstjórnarkosningar snúast um nærumhverfi okkar allra.
Þar eru teknar ákvarðanir sem hafa bein áhrif á daglegt líf
bæjarbúa,þjónustu við fjölskyldur,skipulag byggðar,skólamál,samgöngur og uppbyggingu samfélagsins til framtíðar.

Þess vegna skiptir rödd hvers íbúa máli.

Lýðræðið verður sterkast þegar sem flestir taka þátt.

Með því að kjósa gefa bæjarbúar skýr skilaboð um hvaða gildi þeir vilja
að móti þróun sveitarfélagsins og hvaða áherslur eigi að vera í
forgangi.

Hvert atkvæði hefur vægi og getur haft áhrif á stefnu bæjarins næstu 4
árin.

En þátttaka í lýðræði snýst ekki aðeins um að mæta á kjörstað. Hún
felst einnig í virkri umræðu.

Einnig að koma skoðunum sínum á framfæri og taka þátt í mótun framtíðar samfélagsins.

Sveitarfélag sem hlustar á íbúa sína tekur betri ákvarðanir og byggir
upp meira traust.

Við þurfum bæjarstjórn sem leggur áherslu á opið samtal, gagnsæi og
raunverulegt samtal við íbúa.

Þegar rödd bæjarbúa fær að heyrast skapast sterkari tengsl milli
kjörinna fulltrúa og samfélagsins sem þeir þjóna.

Sveitarstjórnarkosningar eru okkar vettvangur til að móta bæinn sem
við viljum búa í. Rödd bæjarbúa skiptir máli og hún á að fá að heyrast.

Nú er tækifærið til að hafa áhrif setjið X við M.

s
s
s