Árni Marinó Einarsson, markvörður karlaliðs ÍA í knattspyrnu, er meiddur og verður frá næstu vikurnar.
Aðalmarkvörður liðsins meiddist í 2-1 sigurleik ÍA gegn Þór þegar liðin mættust á Akureyri um s.l. helgi.

Árni Marinó er ristarbrotinn en hann varð fyrir meiðslunum í fyrri hálfleik gegn Þór en hann kláraði verkefnið þrátt fyrir að vera ristarbrotinn.
Það má gera ráð fyrir því að Árni Marinó verði frá keppni næstu sex vikurnar í það minnsta.
Skagamenn eru í vandræðum með að manna það skarð sem Árni skilur eftir sig. Varamarkvörður ÍA í síðustu leikjum er fæddur árið 2009 en það er Isak Theodor Eidem. Logi Mar Hjaltested var lánaður til Kára nýverið og getur því ekki fengið félagaskipti til baka í ÍA fyrr en félagaskiptaglugginn opnar á ný um mitt sumar.
Eins og gefur að skilja er hinn 17 ára ungi Isak Theodor ekki með mikla reynslu í efstu deild og hafa forráðamenn ÍA óskað eftir því að félagið fái undanþágu til þess að fá markvörð með reynslu til félagsins.
Félagaskiptaglugginn í efstu deild karla er lokaður og hefur ÍA óskað eftir því að fá markvörð til félagsins á svokölluðu „neyðarláni“.
Næstu leikur ÍA er á fimmtudaginn gegn botnliði ÍBV úr Vestmannaeyjum.
Leikurinn fer fram á Elkem-vellinum og hefst hann kl. 18:00.
Skagamenn eru í 8. sæti Bestu deildarinnar.
ÍA er með 8 stig eftir 2 sigurleiki, 2 jafntefli og 3 tapleiki.








