ÍA er í 7. sæti Bestu deildar karla eftir 2-2 jafntefli gegn botnliði ÍBV frá Vestmannaeyjum. Liðin áttust við í gær í frábæru veðri á Elkem-vellinum á Akranesi. 

Gísli Laxdal og Gísli Eyjólfsson skoruðu fyrir og voru mörkin úr efstu hillu eins og sjá má í myndskeiðinu frá visiri.is hér fyrir neðan. 

Gestirnir úr Eyjum náðu að jafna metin á lokakafla leiksins. 

ÍA er. eð 9 stig að loknum 8 umferðum. ÍA er með 2 sigurleiki, 3 jafntefli og 3 tapleiki. 

Næsti leikur ÍA er á útivelli gegn FH þann 29. maí en Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er þjálfari FH-inga. Liðið er í næst neðsta sæti með 2 stig og er án sigurs það sem af er tímabilinu. 

Mynd: Jón Gautur foto