Þaulreyndur þjálfari tekur við karlaliði ÍA í körfuknattleik – en tilkynnt var um ráðningu Hjalta Þórs Vilhjálmssonar í kvöld. 

Hjalti Þór hefur mikla reynslu sem þjálfari í Bónusdeildinni, efstu deild Íslandsmótsins. Hann þjálfaði Álftanes á síðasta tímabili og var þar áður þjálfari karlaliðs Keflavíkur. Hann hefur einnig þjálfað Val og KR. 

Birkir Guðjónsson formaður Körfuknattleiksfélags ÍA og Hjalti Þór Vilhjálmsson. Mynd/ÍA.

ÍA féll úr Bónusdeildinni í vor eftir og leikur því á ný í næst efstu deild. 

Óskar Þór Þorsteinsson var þjálfari liðsins undanfarin tvö tímabil. Hann kom liðinu upp í efstu deild vorið 2025 og batt þar með enda á 25 ára bið félagsins eftir sæti í efstu deild.

Í tilkynningu frá félaginu kemur eftirfarandi fram:

„Með ráðningu Hjalta stefnir ÍA að því að efla enn frekar metnaðarfullt starf sitt innan félagsins og byggja upp öflugt lið til framtíðar. Félagið bindur miklar vonir við samstarfið og hlakkar til komandi verkefna undir stjórn Hjalta.“

Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is hefur Gojko Sudzum, einn besti leikmaður Bónusdeildarinnar í körfuknattleik skrifað undir nýjan samning við ÍA.

Miðherjinn var gríðarlega öflugur á fyrri hluta tímabilsins en meiðsli í hné setti strik í reikninginn hjá honum um mitt tímabilið. Hann var framlagshæsti leikmaður ÍA á tímabilinu – með 23 stig að meðaltali og 11 fráköst að meðaltali í leik.