Íslandsmeistaramót aldursflokka í sundi fór fram í Reykjanesbæ nýverið. Þar tóku þátt keppendur 15 ára og yngri og voru alls 210 keppendur víðsvegar af landinu. 

Sundfélag Akraness var með 9 keppendur en allir keppendur þurfa að ná nokkuð krefjandi tíma lágmörkum í sundgreinunum til að komast inn á mótið.

ÍA endaði í sjötta sæti í stigakeppninni – og náðu keppendur úr ÍA að bæta árangur sinn og ná markmiðum sínum.   

Keppnisflokkarnir voru eftirtaldir: 11 ára og yngri, 12–13 ára og 14–15 ára.

Karen Anna Orlita varð í 4. sæti í bæði 100 m og 200 m skriðsundi í flokki 14–15 ára og bætti sig í fleiri greinum á mótinu.

Freyja Lilja Niewczas vann til gullverðlauna í 50 m baksundi í flokki 11 ára og yngri. Hún varð einnig í 4. sæti í bæði 50 m flugsundi og 50 m skriðsundi.

Boðsundssveit stúlkna 11 ára og yngri hafnaði í 5. sæti í 4×50 m skriðsundi. Allar stúlkurnar syntu hraðar en bestu tíma sína fyrir mótið.

Sveitina skipuðu:
Freyja Lilja Niewczas
Sigríður Sóley Eiríksdóttir
Anaya Elisabeth Bain
Anita Fönn Gísladóttir

Sama sveit hafnaði í 6. sæti í 4×50 m fjórsundi. Þar skipuðu sveitina:
Freyja Lilja Niewczas
Anaya Elisabeth Bain
Anita Fönn Gísladóttir
Helga Dís Reynisdóttir

Í 4×50 m blönduðu fjórsundi í flokki 12–13 ára hafnaði sveit Sundfélags Akraness í 9. sæti. Athygli vekur að allir keppendur sveitarinnar voru á yngsta ári flokksins.

Sveitina skipuðu:
Rúna Björk Ingvarsdóttir
Gunnar Logi Guðmundsson
Freyja Lilja Niewczas
Sigmar Orri Halldórsson

Keppendur á mótinu frá Sundfélag Akraness:
Karen Anna Orlita, Runa Björk Ingvarsdóttir, Gunnar Logi Guðmundsson, Sigmar Orri Halldórsson, Anita Fönn Gisladóttir, Freyja Lilja Niewczas, Sigriður Sóley Einarsdóttir, Anaya Elisabet Bain, Helga Dís Reynisdóttir.