
Elsa Maren Steinarsdóttir, kylfingur úr Leyni á Akranesi, er í efsta sæti í kvennaflokki eftir fyrsta keppnisdaginn á Íslandsmótinu í golfi 2026.
Skagakonan lék frábært golf á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík og bætti vallarmetið af bláum teigum með því að leika á 67 höggum eða 4 höggum undir pari. Alls fékk Elsa Maren 8 fugla, þar af 6 fugla á síðustu 7 holum hringsins. Skorkortið er hér fyrir neðan.


Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, er í öðru sæti, þremur höggum á eftir Elsu Maren.
Alls eru leiknir fjórir keppnishringir á Íslandsmótinu í golfi og er lokadagurinn á sunnudaginn.
Valdís Þóra Jónsdóttir er eina konan úr röðum Leynis sem hefur fagnað sigri á Íslandsmótinu í golfi – en Valdís Þóra hefur sigrað þrívegis, 2009, 2012 og 2017. Í karlaflokki hafa tveir kylfingar sigrað á Íslandsmótinu í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson árið 1996 en hann bætti síðar við sex titlum sem félagsmaður í GKG. Þórður Emil Ólafsson sigraði á Íslandsmótinu í golfi í karlaflokki árið 1997.
Þrír karlar úr GL taka þátt á Íslandsmótinu 2026 – Tristan Freyr Traustason, Viktor Ingi Einarsson og Birkir Þór Baldursson.







