
Eitt tilboð barst í framkvæmdir á lóð Grundaskóla – en verkefnið var boðið út í byrjun sumars.
Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var tæplega 24 milljónir kr. en tilboð sem Lóðaþjónustan efh. lagði fram var umtalsvert hærra.

Tilboðið var 31,7 milljón kr. eða tæplega 33% yfir áætlun.
Skipulags- og umhverfisráð Akraness ákvað að hafna tilboðinu.
Í fundargerð ráðsins kemur eftirfarandi fram:
„Ráðið leggur áherslu á að teknar verði saman heildarbreytingar sem fyrirhugaðar eru á lóðinni. Í framhaldinu verði horft til þess að bjóða verkið út í heild á því tímabili sem ákveðið verður við gerð fjárhagsáætlunar.“






