Fyrirtækið Kjarnahús efh. hefur áhuga á að því að byggja timburhús á fjórum hæðum á lóð við Suðurgötu 22.

Þetta kemur fram í fundargerð á vef Akraneskaupstaðar. Í fyrirspurn fyrirtækisins kemur fram að hugmyndin sé að byggja hús á fjórum hæðum, alls 320 fermetrar. 

Í svari skipulags og umhverfisráðs kemur fram að lóðin er staðsett innan íbúðarsvæðis þar sem gert er ráð fyrir þéttingu byggðar og endurnýjun. Deiliskipulag er hinsvegar ekki í gildi fyrir svæðið. Skipulags- og umhverfisráð frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Suðurgata er ein af elstu götum Akraneskaupstaðar – og við götuna standa sögufræg hús. Vesturgata er einnig nefnd eftir höfuðáttunum fjórum en Austur -og Norðurgata hafa enn ekki fengið byr undir báða vængi í þessu samhengi í sögu bæjarfélagsins.