Tvö fyrirtæki lögðu fram tilboð í nýtt hringtorg við Akrafjallsveg – en framkvæmdin er stórt verkefni sem Vegagerðin og Akraneskaupstaður standa að. Akraneskaupstaður greiðir um 22% af kostnaðinum. 

Áætlaður kostnaður í verkið var rétt tæplega 617 milljónir kr. 

Þróttur ehf. á Akranesi bauð rétt rúmlega 594 milljónir kr. eða sem nemur 96,3% af kostnaðaráætlun. 

Borgarverk ehf. í Borgarnesi bauð rúmlega 527 milljónir kr. eða sem nemur 85,5 % af kostnaðaráætlun. 

Bæjarráð samþykkti á fundi þann 29. júlí s.l. í umboði bæjarstjórnar að Vegagerðin gangi til samninga við Borgarverk ehf. um verkið. Verklok eru áætluð í nóvember á næsta ári.  

Hringtorgið tengir saman Akrafjallsveg og Akranesveg, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi um Lækjarskóga. Um er ræða gerð hringtorgs, staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg, stígagerð að undirgöngum, lagningu vatns- og hitaveitulagna og annarra fjarskiptalagna og rafstrengja ásamt færslu núverandi háspennustrengja. Innifalið í verkinu er gerð fyllinga og fergingar, útlögn styrktar- og burðarlags, malbikun, niðurlögn ræsa og uppsetning vegriða, lýsingarbúnaðar, skilta og vegbúnaðar, yfirborðsmerkingar, færsla háspennustrengja og lagning vatns- og hitaveitulagna og annarra strenglagna.

Smelltu hér eða á myndina hér fyrir neðan til að sjá teikningar: