Ítarleg umfjöllun er um Vesturlandsveg á Kjalarnesi í Morgunblaðinu í dag. Þar kemur m.a. fram að það gæti tekið allt að 7 ár að tvöfalda veginn á 10 km. kafla og kostnaðurinn er áætlaður 2,6 milljarðar kr.
Vegagerðin áætlar að það taki fimm til sjö ár að breikka Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Talsverð vinna er eftir við undirbúning og fjármagn hefur ekki verið tryggt á fjárlögum.
Gróf kostnaðaráætlun fyrir breikkun hringvegar á Kjalarnesi á 10 km kafla frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum er áætluð í kringum 2.600 milljónir króna.
Vinna er í gangi við gerð deiliskipulags fyrir svæðið og er gert ráð fyrir að deiliskipulagstillaga verði auglýst í febrúar.
Mikill þrýstingur hefur verið á stjórnvöld að grípa til aðgerða á Vesturlandsveginum. Sveitarstjórnir hafa ályktað sem og Fésbókarhópurinn Til öryggis á Kjalarnesi.