Skagahljómsveitin Madre Mia og rappgengið 200 Mafía komust áfram í fyrsta undankvöldi Músíktilrauna sem fram fór í gærkvöld. Sveitirnar tryggðu sér þar með sæti á úrslitakvöldinu sem fer fram laugardaginn 24. mars.
Hljómsveitina Madre Mia skipa þær Katrín Lea Daðadóttir, Hekla María Arnardóttir og Sigríður Sól Þórarinsdóttir. Katrín er 14 ára, hún syngur, spilar á bassa og kassatrommu, Hekla María er 15 ára og er einnig söngvari og spilar á gítar. Sigríður Sól er 15 ára, hún er söngvari og spilar á hljómborð.