Rekstur Guðlaugar við Langasand mun falla undir ábyrgðarsvið forstöðumanns íþróttamannvirkja. Frá því var greint á fundi Skóla- og frístundaráðs á dögunum. Gert er ráð fyrir að laugin verði opnuð fyrir almenning á næstunni.
Samkvæmt heimildum Skagafrétta er áætlað að kostnaðurinn við byggingu Guðlaugar verði rétt rúmlega 80 milljónir kr. Og er það nokkuð nálægt þeirri áætlun sem lögð var fram í upphafi.
Verkefnið „Guðlaug við Langasand“ fékk 30 milljóna kr. styrk. frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en þessir fjármunir koma úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Þar að auki fékk verkefnið 14 milljónir kr. úr Minningarsjóði Jóns Gunnlaugssonar útvegsbónda og Guðlaugar Gunnlaugsdóttur húsmóður frá Bræðaparti á Akranesi – en þeim fjármunum var úthlutað árið 2014.
Framlag Akraneskaupstaðar er því rétt rúmlega 36 milljónir kr.
Guðlaugin samanstendur af útsýnispalli, heitri laug og grynnri laug sem nýtur vatna úr yfirfalli efri laugarinnar.
Á fundi Skóla og frístundaráðs kom fram að rekstur Guðlaugar falli vel að annarri starfsemi á íþróttasvæðinu á Jaðarsbökkum. Fyrst starfsárið verður nýtt til þess að safna upplýsingum – til þess að móta framtíðar rekstrarform Guðlaugar.
Ráðið leggur einnig til að gott samstarf verði á milli skóla- og frístundasviðs og skipulags- og umhverfissviðs við þróun svæðisins og við stefnumótunaraðila ferðaþjónustunnar hjá Akraneskaupstað.
Fyrir aðra áhugasama um verkefnið má hér skoða skýrslu sem Basalt gaf út árið 2015 um Guðlaugu.
Auglýsing