Auglýsing
Fyrsta barn ársins 2019 á Íslandi fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann 1. janúar.
Stúlkan kom í heiminn klukkan þrjá mínútur yfir sex í morgun og vó hún fimmtán merkur og var fimmtíu og einn sentimetrar á lengd.
Foreldrarnir eru Sigríður Hjördís Indriðadóttir og Hannes Björn Guðlaugsson.
Rætt var við foreldrana í fréttatíma Stöðvar 2.
Fréttina má sjá hér fyrir neðan.
„Þetta gekk bara vel loksins þegar allt fór í gang. Ég var sett 23. desember og var eiginlega búin að vera með hríðar í fjóra daga þegar hún ákvað að láta sjá sig með látum, fyrst barn ársins,“ segir Sigríður Hjördís Indriðadóttir, móðir stúlkunnar við Stöð 2.
Auglýsing
Auglýsing