Niðurrif á sementsreitnum mun halda áfram á næstu misserum.
Allar líkur á því að verktakinn Work North ehf. fái viðbótarverkefni upp á rúmlega 40 milljónir kr.
Work North ehf. sá um niðurrif á efnisgeymslu og sementsstrompi.
Þetta kemur fram í fundargerð Skipulags – og umhverfisráðs Akraness frá því í dag.
Verkefnið felst í því að rífa veggina umhverfis sandþró ásamt öðru niðurrifi á svæðinu.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð að samið verði við Work North ehf. um að fjarlægja veggi umhverfis sandþró samhliða öðru niðurrifi við sementsreit.
Um yrði að ræða viðbótarverk við niðurrif á Sementsreit kr. 40.645.936.
Listaverkið á austurgaflinum við sandþró sementsreitsins er eftir Gísla Eyleifsson.
Auglýsing
Auglýsing