Ingunn Ríkharðsdóttir skólastjóri Garðasels skrifar:
„Eins og lítið sár sem hleypir inn sýkingu sem veldur bólgu…
Eins og lítil rifa á lakki bíls sem hleypir inn vatni og súrefni sem veldur ryði sem breiðist út…
Eins og eggjaskurn sem brotnar og innihaldið flæðir út…
Eins og dropinn sem holar steininn…
…er eineltið. Það rífur varnirnar, það býr til berskjöldun. Það brýtur lakkið, hleypir inn sýkingu og sjálfsmyndin flæðir út. Einelti er oft fyrsti dropinn í langri áfalla- og veikindasögu einstaklings. Eineltið getur verið upphafspunktur í langri sorgarsögu. „
Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla
Dagurinn 8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. Einelti má aldrei líðast í neinni mynd og er t.d. brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna en þar er kveðið á um vernd allra barna gegn ofbeldi og að ekki skuli mismuna börnum eftir stöðu þeirra. Útilokun, niðurlæging og að fá ekki að tilheyra hópnum er einelti og okkur ber skylda til að vinna gegn því, aðstoða þá sem í því lenda og veita þeim stuðning. Þegar samkenndin víkur, augum er lokað og vandamálið hunsað – þá erum við að bregðast.
Vináttuverkefni Barnaheilla
Þessi forvarnarvinna þarf að byrja í leikskólum því einelti eða samskiptamynstur, sem getur leitt til eineltis eða útilokunar, má oft rekja niður í leikskólann. Því er mikilvægt að leikskólinn byggi upp öruggt félagslegt umhverfi og jákvæðan skólabrag, þar sem einelti fær ekki að þróast. Leikskólar á Akranesi hafa innleitt Vináttuverkefni Barnaheilla, sem er forvarnarverkefni með sérsniðnu námsefni, sem hentar vel þroska leikskólabarna. Námsefnið er í máli og myndum, söng og sögum, þar sem börnin fá tækifæri til að æfa sig í sértækum aðstæðum og máta eigin tilfinningar og upplifun og segja frá.
Verkefninu fylgir stór og hlýlegur bangsi, Blær, sem verður ígildi vináttunnar í hópnum og þá fá öll börn að gjöf sinn eigin Blæ, sem fylgir þeim í gegnum leikskólann, er vinur þeirra og veitir traust og huggun ef þarf.
Hugmyndafræði verkefnisins byggir á fjórum gildum ;
- umburðarlyndi – að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans
- virðingu – að viðurkenna og taka til tillit til barnanna í hópnum og vera góður félagi
- umhyggju – að sýna öllum börnum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi.
- hugrekki – að þora að láta heyra í sér og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti.
Hlutverk og ábyrgð hinna fullorðnu
Foreldrar barna og hinir fullorðnu eru fyrirmyndir og hafa ríka ábyrgð þegar kemur að því að móta þá grunnþætti í félagsþroska barna sem gerir þau að góðum félögum. Foreldrar eru mikilvægir samherjar skólanna og saman og samstíga geta þessir aðilar náð miklum árangri. Uppbyggjandi og jákvæð samskipti eru lykilþættir í góðri samvinnu.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar er orðatiltæki sem inniber góð gildi. Því skiptir máli að hinir fullorðnu séu góðar fyrirmyndir barnanna í orði og verki og þeir gæti að því hvernig þeir tala um önnur börn og foreldra þeirra í návist barna. Það getur skipt máli að koma á sameiginlegum hefðum með öðrum foreldrum og leikskólanum varðandi afmælisdaga barnanna, heimboð og annað, sem leitt getur til útilokunar barns eða barna.
Foreldrar þurfa að hlusta á börn sín, hvetja þau til að segja frá og styðja þau og leiðbeina þegar þess þarf. Þá þarf líka að hvetja börn til að sýna hugrekki og styðja félaga sína sem eru í vanda.
Börnin okkar
Öll börn skipta máli og félagsleg líðan þeirra er ein af grunnforsendum í skólastarfi og í samfélaginu okkar.
Öll börn eru okkar börn – höfum það hugfast og tökum ábyrgð.