„Okkur þykir miður að tilkynna að komið er að leiðarlokum í Leirbakarínu, síðustu dagarnir sem opið er hjá okkur eru föstudagurinn 7. og laugardagurinn 8. janúar,“ segir í tilkynningu frá Kolbrúnu Sigurðardóttur og Maríu Kristínu Óskarsdóttur sem hafa kryddað gamla miðbæinn á Akranesi undanfarin þrjú ár með handverksmiðstöðinni við Suðurgötu.
Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur, skemmtilegar heimsóknir og ánægjuleg viðskipti síðustu 3 árin.
Við bjóðum ykkur velkomin þessa síðustu helgi sem við höfum húsnæðið á Suðurgötunni til afnota og bjóðum ykkur 25% afslátt af öllum vörum í galleríinu.
Þið getið sent okkur skilaboð á [email protected] ef þið viljið panta vörur eða vera í sambandi við okkur.
Kveðja
Kolla og Maja Stína