Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is er Hrönn Ríkharðsdóttir nýr formaður Íþróttabandalags Akraness, ÍA.
Hrönn er þriðja konan sem gegnir þessu embætti frá því að ÍA var stofnað árið 1946. Hrönn fetar í fótspor föðurs síns, Ríkharðs Jónssonar, sem var formaður ÍA á árunum 1971-1977.

Hrönn er 18. einstaklingurinn sem tekur að sér þetta sjálfboðaliðastarf fyrir hönd íþróttahreyfingarinnar á Akranesi. Helga Sjöfn Jóhannesdóttir var fyrsta konan sem kjörin var formaður ÍA árið 2016 og Marella Steinsdóttir var sú önnur í röðinni.
Fram að kjöri Helgu höfðu 14 karlar gegnt þessu embætti. Guðmundur Sveinbjörnsson er sá sem hefur oftast verið formaður ÍA, eða í 16 ár samtals. Guðmundur var formaður á árunum 1951-1961 og tók á ný við formennsku á árunum 1965-1970. Sturlaugur Sturlaugsson er með lengsta samfellda setu í formannsembættinu en hann var í 15 ár samfellt formaður ÍA á árunum 1999-2013.
| 2022 | Hrönn Ríkharðsdóttir |
| 2021 | Marella Steinsdóttir – (4 ár) |
| 2020 | Marella Steinsdóttir |
| 2019 | Marella Steinsdóttir |
| 2018 | Marella Steinsdóttir |
| 2017 | Helga Sjöfn Jóhannesdóttir (2 ár) |
| 2016 | Helga Sjöfn Jóhannesdóttir |
| 2015 | Sigurður Arnar Sigurðsson (2 ár) |
| 2014 | Sigurður Arnar Sigurðsson |
| 2013 | Sturlaugur Sturlaugsson (15 ár) |
| 2012 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2011 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2010 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2009 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2008 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2007 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2006 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2005 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2004 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2003 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2002 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2001 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 2000 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 1999 | Sturlaugur Sturlaugsson |
| 1998 | Jón Runólfsson (7 ár) |
| 1997 | Jón Runólfsson |
| 1996 | Jón Runólfsson |
| 1995 | Jón Runólfsson |
| 1994 | Jón Runólfsson |
| 1993 | Jón Runólfsson |
| 1992 | Jón Runólfsson |
| 1991 | Magnús Oddsson (8 ár) |
| 1990 | Magnús Oddsson |
| 1989 | Magnús Oddsson |
| 1988 | Magnús Oddsson |
| 1987 | Magnús Oddsson |
| 1986 | Magnús Oddsson |
| 1985 | Magnús Oddsson |
| 1984 | Magnús Oddsson |
| 1983 | Andrés Ólafsson (3 ár) |
| 1982 | Andrés Ólafsson |
| 1981 | Andrés Ólafsson |
| 1980 | Svavar Sigurðsson (1 ár) |
| 1979 | Þröstur Stefánsson (2 ár) |
| 1978 | Þröstur Stefánsson |
| 1977 | Þröstur Stefánsson |
| 1976 | Ríkharður Jónsson (5 ár) |
| 1975 | Ríkharður Jónsson |
| 1974 | Ríkharður Jónsson |
| 1973 | Ríkharður Jónsson |
| 1972 | Ríkharður Jónsson |
| 1971 | Óli Örn Ólafsson (1 ár) |
| 1970 | Guðmundur Sveinbjörnsson (6 ár) |
| 1969 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1968 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1967 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1966 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1965 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1964 | Lárus Árnason (2 ár) |
| 1963 | Lárus Árnason |
| 1962 | Guðmundur Sveinbjörnsson (12 ár) |
| 1961 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1960 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1959 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1958 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1957 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1956 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1955 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1954 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1953 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1952 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1951 | Guðmundur Sveinbjörnsson |
| 1950 | Óðinn Geirdal (2 ár) |
| 1949 | Óðinn Geirdal |
| 1948 | Stefán Bjarnason (1 ár) |
| 1947 | Þorgeir Ibsen (2 ár) |
| 1946 | Þorgeir Ibsen |










