Menningarverkefnið Skaginn syngur inn jólin er langt komið en í dag var 15. glugginn opnaður.
Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir halda utan um verkefnið líkt og undanfarin ár.
Á hverjum degi fram að jólum er nýr gluggi opnaður í þessu tónlistardagatali sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.
Í dag var fimmtándi glugginn opnaður.
Hallgrímur Guðsteinsson flytur hér frumsamið jólalag – sem heitir Jólanótt. Georg Grundfjörð samdi lagið með Hallgrími. Textinn er eftir Hallgrím og Snorra Sturluson.