Lúðvík Gunnarsson tók nýverið við nýju starfi hjá Knattspyrnusambandi Íslands.
Skagamaðurinn hefur á undanförnum árum verið yfirmaður Hæfileikamótunar KSÍ og þjálfari U15 karla.
Hann hefur nú verið ráðinn sem þjálfari U17 og U16 karla – og tekur við af Jörundi Áka Sveinssyni, sem var ráðinn sviðsstjóri knattspyrnusviðs á dögunum.
Lúðvík heldur áfram í störfum sínum í Hæfileikamótuninni og með U15 karla þar til nýr þjálfari verður ráðinn.
Fyrsta verkefni Lúðvíks með U17 karla verður milliriðill í undankeppni EM 2023 sem spilaður verður í Wales í lok mars.