Tveir leikmenn úr röðum ÍA voru í U-21 árs landsliðshóp KSÍ í karlaflokki sem æfði saman um liðna helgi, 7.-8. febrúar í Miðgarði í Garðabæ.
Davíð Snorri Jónasson, er þjálfari liðsins og valdi hann 26 leikmenn frá 14 félögum – en allir leikmennirnir leika með liðum á Íslandi.

Næsta verkefni liðsins er vináttuleikur gegn Írum sem fram fer í Cork á Írlandi þann 26. mars 2023.
Æfingarnar fara báðar fram í Miðgarði í Garðabæ og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir vináttuleik gegn Írlandi 26. mars sem leikinn verður í Cork á Írlandi. Æfingahópurinn samanstendur af leikmönnum sem leika á Íslandi.
FH er með flesta leikmenn eða 6 alls.
Hópurinn er þannig skipaður:
FH (6), Fylkir (3), Víkingur R. (3), Breiðablik (2), ÍA (2), Stjarnan (2), Leiknir R. (1), Fjölnir (1), HK (1), Selfoss (1), Valur (1), Þróttur R. (1), Þór Ak. (1).
- Andi Hoti – Leiknir R.
 - Anton Logi Lúðvíksson – Breiðablik
 - Eyþór Aron Wöhler – Breiðablik
 - Baldur Logi Guðlaugsson – FH
 - Davíð Snær Jóhannsson – FH
 - Jóhann Ægir Arnarsson – FH
 - Logi Hrafn Róbertsson – FH
 - Ólafur Guðmundsson – FH
 - Úlfur Ágúst Björnsson – FH
 - Lúkas Logi Heimisson – Fjölnir
 - Arnór Gauti Jónsson – Fylkir
 - Ólafur Kristófer Helgason – Fylkir
 - Óskar Borgþórsson – Fylkir
 - Eiður Atli Rúnarsson – HK
 - Árni Marínó Einarsson – ÍA
 - Jón Gísli Eyland Gíslason – ÍA
 - Arnar Breki Gunnarsson – ÍBV
 - Jón Vignir Pétursson – Selfoss
 - Ísak Andri Sigurgeirsson – Stjarnan
 - Örvar Logi Örvarsson – Stjarnan
 - Orri Hrafn Kjartansson – Valur
 - Ari Sigurpálsson – Víkingur R.
 - Danijel Dejan Djuric – Víkingur R.
 - Sveinn Gísli Þórkelsson – Víkingur R.
 - Baldur Hannes Stefánsson – Þróttur R.
 - Ragnar Óli Ragnarsson – Þór Ak.