Sundfólk úr röðum Sundfélags Akraness byrjaði vetrartímabilið með flottum árangri á Turbmóti Ármanns sem fram fór 24. september s.l.
Á mótinu voru 320 keppendur .
Alls voru 19 keppendur frá ÍA og náði sundfólkið að bæta árangur sinn í 41. skipti, 3 Akranesmet féllu og landsliðslágmörkum var náð.
Einar Margeir Ágústsson setti 3 Akranesmet ;
100 m skriðsund á 51.53 sek., gamla metið átti Ágúst Júlíusson frá 2011 á 52.15 sek.
200 m skriðsund á 1.54.63 mín., gamla metið átti Guðbjarni Sigþórsson frá því í fyrra á 1.56.04 mín.
100 m fjórsund á 57.55 sek., gamla metið átti hann sjálfur á tímanum 58.80 sek. frá því í fyrra.
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti undir landsliðslágmarkinu í 100 m. skriðsundi á 57.48 sek.
Næst á dagskrá hjá Sundfélagi Akraness er Arena Mót Ægis sem fram fer dagana 7-8 október.