Skagamenn með góðan sigur gegn KA – sjáðu markið

Karlalið ÍA leikur í efri hluta Bestu deildarinnar í næstu fimm umferðum deildarinnar.

ÍA lagði KA í gær á heimavelli, 1-0, í 22. umferð deildarinnar sem var jafnframt síðasti leikur ÍA fyrir skiptingu deildarinnar í efri og neðri hluta. 

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði eina mark ÍA gegn KA í gær en þetta var fyrsta mark Rúnars fyrir ÍA á tímabilinu. Markið má sjá á vef Vísis hér fyrir neðan. 

ÍA endaði í 4. sæti en 6 efstu liðin mætast í síðustu fimm umferðum deildarinnar. 

22. september leikur ÍA gegn Breiðabliki eða Víkingum á útivelli. 
29. september leikur ÍA á útivelli gegn Stjörnunni.
6. október leikur ÍA á heimavelli gegn FH.
19. október leikur ÍA á heimavelli gegn Víkingi eða Breiðabliki. 
26. október leikur ÍA á útivelli gegn Val.