Bára tekur við farsældarmálum hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi

Bára Daðadóttir félagsráðgjafi á Akranesi var nýverið ráðin sem verkefnastjóra farsældarmála hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. 

Bára var valin úr hópi níu umsækjenda en frá þessu er greint á vef SSV.

Hlutverk Báru er að hafa umsjón með innleiðingu farsældarlaga hjá sveitarfélögunum á Vesturlandi, en SSV ritaði undir samstarfssamning þess efnis við Ásmund Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra á Farsældardeginum á Vesturlandi síðastliðið vor.

Bára hefur lokið BA í félagsráðgjöf og MA námi í félagsráðgjöf til starfsréttinda frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka reynslu á sviði velferðar- og farsældarmála.

Þannig hefur Bára starfað sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og verið félagsrágjafi hjá Akraneskaupstað og Kópavogsbæ. Hjá Akraneskaupstað tók Bára þátt í innleiðingu farsældarlaganna hjá bænum, en Akranes er í fararbroddi er kemur að málaflokknum á landsvísu.

 

Auk þess mun Bára sinna öðrum verkefnum eins og Ungmennaráði Vesturlands og samstarfsverkefninu Öruggara Vesturland, átaksverkefni gegn heimilisofbeldi á Vesturlandi.