Sjónvarpsstöðin ÍA TV fékk góða gjöf frá samstarfsaðila stöðvarinnar sem mun nýtast gríðarlega vel í framtíðinni. Næsta útsending hjá ÍA TV er í kvöld. Sýnt verður beint frá leik ÍA og Breiðabliks í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19.15 í íþróttahúsinu við Vesturgötu.
Omnis afhenti forsvarsmönnum ÍA TV útbúnað fyrir hljóðupptöku frá viðburðum sem sýndir verða í framtíðinn og verða hljóðgæðin því mun betri, sérstaklega í lýsingum frá viðburðum.
„Við kunnum þeim auðvitað bestu þakkir fyrir og hlökkum til að halda áfram að gera ÍA TV
enn betra í góðu samstarfi við Omnis,“ segir í tilkynningu frá ÍA TV.