Þann 10. nóvember árið 2016 fóru Skagafréttir í loftið og fréttavefurinn á því 8 ára afmæli í dag.
Jákvæðar fréttir verða áfram rauði þráðurinn í fréttaumfjöllun Skagafrétta.
Lesendur hafa kunnað meta slíkar áherslur. Og með hverju árinu sem líður hefur lesendahópurinn stækkað jafnt og þétt.
Fréttasafnið telur mörg þúsund fréttir, og myndasafn Skagafrétta verður í framtíðinni ómetanleg heimild um mannlífið á Akranesi.
Viðtökur lesenda hafa frá fyrsta degi verið framar vonum.
Við sem stöndum á bak við þetta verkefni erum þakklát fyrir stuðninginn. Markmiðið er að gera enn betur.
Fjölmörg fyrirtæki hafa í gegnum tíðina staðið þétt við bakið á uppbyggingu Skagafrétta. Og á undanförnum mánuðum hafa dyggir lesendur gert slíkt hið sama.
Kærar þakkir fyrir stuðninginn og allar heimsóknirnar. Það er ómetanlegt.
Smelltu hér til að skoða valkostina til að styðja við bakið á skagafrettir.is.