RÚV verður með þátt í dag þar sem að oddvitar allra þeirra flokka sem bjóða fram í NV-kjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2024 sitja fyrir svörum.
Þátturinn verður í beinni útsendingu og er hægt að fylgjast með útsendingunni hér á skagafrettir.is.
Umsjónarmenn eru Freyr Gígja Gunnarsson og Gréta Sigríður Einarsdóttir en þátturinn er sendur út frá bæjarskrifstofunni á Akranesi.
Útsendingin hefst kl. 18:10 og stendur þátturinn fram til kl. 20.
Allir oddvitar hafa boðað komu sína þannig að þátttakendur verða eftirtaldir:
B – Stefán Vagn Stefánsson
C – María Rut Kristinsdóttir
D – Ólafur Adolfsson
F – Eyjólfur Ármannsson
J – Guðmundur Hrafn Arngrímsson
L – Eldur Smári Kristinsson
M – Ingibjörg Davíðsdóttir
P – Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
S – Arna Lára Jónsdóttir
V – Álfhildur Leifsdóttir