Sunna Rún Sigurðardóttir, leikmaður meistaraflokks ÍA í knattspyrnu, var nýverið valin í U-17 ára landslið Íslands sem tekur þátt á æfingamóti í Portúgal. Mótið hefst 20. janúar og því lýkur 29. janúar.
Skagamaðurinn Þórður Þórðarson valdi leikmannahópinn þann 6. janúar s.l. en alls eru 20 leikmenn í hópnum.
Nýverið var Skagakonan Aldís Ylfa Heimisdóttir ráðin sem þjálfari U-16 og U-17 ára landsliðs KS. Í
Eins og áður segir eru 20 leikmenn í hópnum. FH er með 4 leikmenn, Valur 3, Grótta 2 og Tindastóll frá Sauðárkróki er einnig með 2 leikmenn. Stjarnan, Breiðablik, HK, ÍA, KH, Keflavík, Víkingur R., Þróttur R og Þór/KA eru öll með 1 leikmann í hópnum.
Danmörk, Portúgal, Danmörk og Wales taka þátt á þessu móti ásamt Íslandi.
Hópurinn er þannig skipaður:
- Edith Kristín Kristjánsdóttir – Breiðablik
- Anna Heiða Óskarsdóttir – FH
- Thelma Karen Pálmadóttir – FH
- Hrönn Haraldsdóttir – FH
- Hafrún Birna Helgadóttir – FH
- Elísa Birta Káradóttir – HK
- Sunna Rún Sigurðardóttir – ÍA
- Ísold Hallfríðar Þórisdóttir – KH
- Anna Arnarsdóttir – Keflavík
- Arnfríður Auður Arnarsdóttir – Grótta
- Rebekka Sif Brynjarsdóttir – Grótta
- Fanney Lísa Jóhannesdóttir – Stjarnan
- Ágústa María Valtýrsdóttir – Valur
- Sóley Edda Ingadóttir – Valur
- Hrafnhildur Salka Pálmadóttir – Valur
- Birgitta Rún Finnbogadóttir – Tindastóll
- Elísa Bríet Björnsdóttir – Tindastóll
- Anika Jóna Jónsdóttir – Víkingur R
- Hekla Dögg Ingvarsdóttir – Þróttur R
- Bríet Kolbrún Hinriksdóttir – Þór/KA