Karlalið ÍA hefur keppni í Lengjubikarnum um miðjan febrúar

Karlalið ÍA hefur fljótlega keppni í Lengjubikarkeppni KSÍ – en liðið leikur í riðli 1 í efstu deild keppninnar.

Fyrsti leikur ÍA er 8. febrúar á heimavelli í Akraneshöllinni kl. 14:00 gegn Vestra frá Ísafirði. 

Í riðlinum með ÍA eru Fjölnir, Valur, Þróttur, Grindavík og Valur. 

ÍA leikur gegn Valsmönnum laugardaginn 15. febrúar kl. 12 í Akraneshöll, og fimmtudaginn 20. febrúar kl. kemur Grindavík í heimsókn. 

Miðvikudaginn 26. febrúar mætir ÍA liði Fjölnis á útvelli kl. 19.30.  Lokaleikur ÍA er gegn Þróttir úr Reykjavík á heimavelli Þróttar sunnudaginn 2. mars kl. 16:00. 

Töluverðar breytingar eru á leikmannahóp ÍA fyrir tímabilið. 

Þrír leikmenn hafa verið lánaðir til Grindavíkur. Þeir eru: Ármann Finnbogason, Breki Hermannsson og Árni Salvar Heimisson.

Arnleifur Hjörleifsson hefur verið lánaður til Njarðvíkur og fyrirliðinnn Arnór Smárason hefur lagt skóna á hilluna.