Sem verktaki á þessu verkefni langar mig að lýsa því yfir að ég hef líka orðið fyrir vonbrigðum með tafir á þessu verkefni. Ég tel hinsvegar ekki að það sé ekki hægt að sakast við verktakann í þessu tilviki,“ segir Sverrir Hermann Pálmarsson verktaki vegna ályktunar velferðar – og mannréttindaráðs Akraness vegna tafa á uppbyggingu á búsetukjarna við Skógarlund 40 fyrir fatlað fólk.
Í síðustu fundargerð ráðsins kemur fram að ráðið lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá stöðu sem uppi er í verkefninu og að ekkert hafi í raun staðist af þeim áætlunum sem verktakinn hefur kynnt á fyrri fundum ráðsins.
Sverrir Hermann segir að nokkrar ástæður séu á bak við tafirnar og útskýrir hann þær hér fyrir neðan.
„Forsagan er sú að það var sótt um stofnframlag um þetta verkefni í byrjun apríl á lóð sem Akraneskaupstaður lagði til undir verkefnið sem var Tjarnarskógar 15 og í svarbréfi HMS þann 19 júní 2023 er samþykkt að veita stofnframlag til þessarra uppbyggingar við Tjarnarbraut 15 Akranesi
Það er rétt að það var skrifað undir samning við Akraneskaupstað um stofnframlag vegna þessarra uppbyggingar árið 2023 nánar tiltekið í september 2023 enn þá var Akraneskaupstaður búinn að færa verkefnið að Skógarlundi 42 þrátt fyrir að ég hefði mótmælt því þar sem að gatnagerð væri ekki tilbúinn við Skógarlund og við gætum ekki hafið framkvæmdir strax sem hægt hefði verið að gera við Tjarnarskóga.
Niðurstaða varð samt þessi að við skyldum byggja þetta við Skógarlund 42. Það sem gerist í framhaldinu er nú varla hægt að kenna verktakanum um en Akranes kaupstaður lofar að gatnagerð verði tilbúinn síðasta lagi í febrúar-mars.
Við nýttum tímann til undirbúnings og skiluðum inn teikningum og fengum byggingarleyfi 5 febrúar 2024 og planið var að hefja jarðvinnu seinnipartinn í febrúar byrjun mars þegar lóðin átti að verða tilbúin.
Staðreyndin var sú að við gátum hafið framkvæmdir við sökkla í vikunni eftir verslunarmannahelgina í ágúst og vorum án rafmagns og rennandi vatns fram í nóvember og fengum tengingu á skólpi í byrjun desember. Nú veit ég ekki nákvæmlega hvað gerðist eða hvers vegna gatnagerð tafðist í hverfinu. Staðan á framkvæmdum er í dag þannig að það er búið að reisa húsið og alla innveggi og baðherbergi eru tilbúinn á rúmum 5 mánuðum við afar erfiðar veðurfarslegar aðstæður um miðjan vetur í stað þess að gera þetta að sumri eins og upprunalegu áætlunar gerður ráð fyrir.
Allar þessar tafir valda auknum kostnaði fyrir verktaka og verkefnið í heild má þá nefna nokkur atriði sem hafa áhrif.
Geymslugjöld á vögnum sem einingarnar voru fluttar með þar sem gert var ráð fyrir að reisa húsið í maí en ekki ágúst en verksmiðjan afhenti einingarnar á umsömdum tíma miðað við það.
Verkefna og byggingarstjórn verður 6 mánuðum lengri en gert var ráð fyrir
Veðurfarsleg áhrif þar sem oft hefur þurft að hætta hífingum um miðjan dag vegna vinds með auknum kostnaði við kranaleigu.
Aðgangur að grunnþjónustu vegna tafa á grunnlögnum í götum og má þá nefna að við sökkla þurfti að vinna með Rafstöð og vatn í tönkum og ekki var hægt að nota salerni í vinnuskúrum þar sem ekki var hægt að tengja skólplagnir við götulagnir.
Það er rétt að ég var boðaður á fund velferðarráðs með afar skömmum fyrirvara og gat ekki mætt þar sem ég var búinn að gera önnur plön á fundartíma ráðsins, ég fór hins vegar á fund með sviðsstjóra velferðarráðs og sviðsstjóra stjórnsýslu og fjármálasviðs ásamt sviðsstjóra skipulags og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar daginn fyrir fund velferðarráðs þar sem ég afhenti þeim minnisbréf og uppfærðar áætlanir um breyttar forsendur verkefnisins í heild og fór í gegnum ástæður tafa sem ég hef í stórum dráttum listað upp hér að ofan.
Það er nú svo að þegar áætlanir eru gerðar þá byggjast þær á ákveðnum forsendum og í þessu máli brást áætlun um afhendingu á tilbúinni lóð sem er ekki síður mikilvægt að standist. Svo geta menn deilt um hvort að 12 mánaða framkvæmda tími á svona byggingu sé langur eða ekki,“ segir Sverrir Hermann Pálmarsson.