„Jæja þá er ekki aftur snúið! Besta og skemmtilegasta starf sem hugsast getur er laust. Brekkófjölskyldan er einfaldlega best og ég mun kaupa upp lagerinn á Íslandi af táraklútum í maí,“ skrifar Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi í færslu á fésbókarsíðu sinni. 

Í dag var starf hennar auglýst til umsóknar með formlegum hætti. 

Arnbjörg hefur gegnt starfinu í 19 ár. Um 460 nemendur eru í skólanum og starfsfólkið er um 100. 

Í auglýsingunni kemur eftirfarandi fram:

„Akraneskaupstaður leitar að umbótasinnuðum og farsælum leiðtoga til að leiða metnaðarfullt skólastarf í öflugum grunnskóla.

Brekkubæjarskóli er heildstæður skóli með 470 nemendur í 1. – 10. bekk og hefur náð góðum árangri í inngildandi skólastarfi og heildstæðri nálgun þar sem lögð er mikil áhersla á að hver nemandi fái að nýta hæfileika sína.

Brekkubæjarskóli er teymiskennsluskóli með áherslu á þverfaglega teymisvinnu. Gott orðspor fer af þessari vinnu og hafa fjölmargir skólar á Íslandi fengið kynningu á þessum vinnubrögðum.

Brekkubæjarskóli er Byrjendalæsisskóli og er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við nám og kennslu í öllum skólanum. Öflugt tónlistarstarf hefur einkennt skólann um langt árabil og lögð er áhersla á skapandi skólastarf. Á þriggja ára fresti setur skólinn upp stórt leikrit þar sem allir nemendur á unglingastigi fá tækifæri til að taka þátt.

Í Brekkubæjarskóla er virkt nemendalýðræði og vinnur skólinn markvisst að því að skapa leiðir fyrir nemendur til að hafa áhrif í öllu skólastarfi. Akraneskaupstaður vinnu að því að verða barnvænt sveitarfélag með innleiðingu Barnasáttmálans og á sér stað öflug samvinna innan bæjarins um aukna þátttöku barna í ákvörðunum sem varða þau.

Góður og fróður er skólastefna Brekkubæjarskóla og er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans. Markviss vinna er með dygðir þvert á allar námsgreinar er hluti af skólastefnunni.

Umfangsmiklar lagfæringar og breytingar hafa verið gerðar á húsnæði skólans og verður þeim lokið í janúar 2026. Þá verða til að mynda teknar í notkun nýjar kennslustofur fyrir list- og verkgreinar sem eru hannaðar í takt við nútímakennsluhætti.“