Sr. Þráinn Haraldsson, sóknarprestur í Garða – og Saurbæjarprestakalli, mun stunda nám við guðfræðideild Duke háskólans í Bandaríkjunum frá og með næsta hausti. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Þráins – en þar óskar hann eftir traustum leigjendum í hús fjölskyldunnar við Jörundarholt. 

Þráinn fer í námsleyfi í eitt ár og segir hann að fjölskyldan sé spennt yfir nýjum tækifærum undirbúningur fyrir brottför sé nú þegar byrjaður. 

Þráinn var kjörinn sóknarprestur hér á Akranesi í ágúst árið 2019. 

Einungis fimm sóknarprestar hafa þjónað Akurnesingum frá árinu 1886.

Starfsmannaveltan í þessu embætti er því með minnsta móti – miðað við mörg önnur embætti.

Að meðaltali hafa sóknarprestarnir á Akranesi starfað samfellt í 26,6 ár.

Sr. Jón A. Sveinsson var í embættinu í 35 ár sem er met. Hann var fyrsti sóknarpresturinn á Akranesi.

Sr. Þráinn Haraldsson er aðeins sjötti sóknarpresturinn í 133 ára sögu prestakallsins á Akranesi.

Miðað við söguna þá má búast við því að Þráinn verði sóknarprestur á Akranesi í það minnsta til ársins 2046 – en þá verður Þráinn 62 ára gamall.

Sóknarprestar á Akranesi frá upphafi:

Sr. Jón A. Sveinsson 1886-1921 (35 ár).
Þorsteinn Briem 1921-1946 (25 ár).
Jón M. Guðjónsson 1946-1975 (29 ár).
Björn Jónsson 1975 – 1997 (22 ár).
Eðvarð Ingólfsson 1997 – 2019 (22 ár).
Þráinn Haraldsson 2019 –