Nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í margmiðlun stóðu sig vel í verkefninu „Ungt umhverfisfréttafólk“. 

Markmið verkefnisins er að skapa ungmennum vettvang til þess að kynna sér umhverfismál og koma upplýsingum á framfæri á skapandi hátt. 

Alls komust 12 verkefni í úrslit keppninnar og voru nemendur úr FVA með þrjú verkefni í úrslitum. 

Dómnefndi unga fólksins var á þeirri skoðun að Vapeland verkefnið eftir Víði Þór Vignisson væri það besta.

Verkefnin frá FVA voru eftirfarandi:

  • Vapeland – Víðir Þór Vignisson
  • Agnir í hafinu – Krista Bríet Ólafsdóttir, Freyja Hrönn Jónssdóttir,
  • Endurunnið líf – Helga Rós Ingimarsdóttir og Rakel Sif Stefánsdóttir
  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?