Jón Sölvi Símonarson, markvörður í leikmannahóp mfl. ÍA í knattspyrnu hefur verið valinn í U-19 ára landslið Íslands sem mætir Englandi í æfingaleikjum 3.-6. júní.
Daníel Ingi Jóhannesson, fyrrum leikmaður ÍA, er einnig í hópnum en Daníel Ingi er leikmaður hjá danska liðinu Nordsjælland.

Jón Sölvi gekk í raðir ÍA nýverið en hann er á lánssamningi frá Breiðabliki í Kópavogi.
Þórhallur Siggeirsson er þjálfari U19 karla.
Athyglisvert er að leikmennirnir 20 í hópnum koma frá 17 félögum. Níu leikmenn eru á mála hjá erlendum félögum.
- Markverðir:
- Gylfi Berg Snæhólm – Breiðablik
- Jón Sölvi Símonarson – ÍA
Aðrir leikmenn:
- Breki Baldursson – Esbjerg fB
- Daði Berg Jónsson – Vestri
- Daníel Ingi Jóhannesson – Nordsjælland
- Davíð Helgi Aronsson – Njarðvík
- Egill Orri Arnarsson – FC Midtjylland
- Einar Freyr Halldórsson – Þór Ak.
- Gabríel Snær Hallsson – Breiðablik
- Galdur Guðmundsson – AC Horsens
- Gunnar Orri Olsen – FCK
- Rafael Máni Þrastarson – Fjölnir
- Róbert Elís Hlynsson – KR
- Stefán Gísli Stefánsson – Valur
- Stígur Diljan Þórðarson – Víkingur R.
- Sölvi Stefánsson – AGF
- Tómas Johannessen – AZ Alkmaar
- Tómas Óli Kristjánsson – AGF
- Viktor Bjarki Daðason – FCK
- Þorri Stefán Þorbjörnsson – Fram
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?