Káramenn lönduðu flottum sigri í gær gegn Víði úr Garði á Íslandsmótinu í 2. deild í knattspyrnu karla.
Gestirnir komust yfir í byrjun síðari hálfleiks – en með góðum lokakafla náðu heimamenn að tryggja sér 2-1 sigur.

Finnbogi Laxdal jafnaði metin á 75. mínútu og Marinó Hilmar skoraði sigurmarkið með góðu skoti á 87. mínútu.
Kári er í 9. sæti deildarinnar með 6 stig en næsti leikur liðsins er gegn KFG mánudaginn 9. júní á heimavelli Stjörnunnar og hefst leikurinn kl. 14.00.

- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?