Heiðar Mar Björnsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness, ÍA. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍA.
Íþróttabandalag Akraness tók ákvörðun um að ráða Heiðar Mar Björnsson í starf framkvæmdastjóra og tekur hann til starfa í síðasta lagi 1. ágúst 2025.
Heiðar er menntaður kvikmyndagerðarmaður með áherslu á framleiðslu kvikmynda og handritaskrif. Heiðar er Skagamaður í húð og hár og æfði knattspyrnu með ÍA upp í 2. flokk, handbolta, körfubolta og spilaði golf og gerðist síðar dómari á vegum Knattspyrnudómarafélags Akraness (KDA).
Hann hefur verið í íþróttahreyfingunni á Akranesi frá 6 ára aldri og þekkir mjög vel til starfsins, nú síðast sat hann í stjórn ÍA frá 2022-2025.
Heiðar hefur framleitt fjöldann allan af íþróttaefni, bæði í beinum útsendingum ásamt heimildamyndum og þáttaröðum fyrir sjónvarp. og þegar hann flutti aftur heim á Akranes frá Englandi.
Í lok árs 2015 tók hann þátt í því, með góðum hópi að stofna netrásina ÍATV, sem síðan þá hefur sent út hundruð íþróttaviðburða frá Akranesi í sjálfboðavinnu fyrir hreyfinguna.
Undanfarið ár hefur Heiðar starfað sem svæðissfulltrúi ÍSÍ og UMFÍ á Vesturlandi og unnið að verkefnum að efla og styrkja starf íþróttahreyfingarinnar fyrir börn og ungmenni, ásamt almennum störfum er koma að rekstri íþróttahéraða/bandalaga og einnig félaga.
Heiðar Mar er giftur Söru Hjördísi Blöndal sýningar- og leikmyndahönnuði og eiga þau þrjú börn Skorra Birni 11 ára, Yrju Blævi 9 ára og Frosta Brimi 7 ára.
Heiðar Mar tekur við starfi framkvæmdastjóra ÍA af Guðmundu Ólafsdóttur, sem óskað hefur eftir því að láta af störfum, hún hefur gegnt starfinu í tæp fimm ár og er henni þökkuð vel unnin störf í þágu íþróttastarfs á Akranesi og óskað velfarnaðar í nýjum verkefnum.
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?