Lið Leynis í flokki 19-23 ára pilta náð flottum árangri á Landsmóti golfklúbba sem fram fór nýverið á Kiðjabergsvelli.

Alls tóku 8 lið þátt. 

Skagamenn náðu þriðja sætinu eftir sigur gegn Nesklúbbnum í úrslitaleik um bronsið. 

Lið Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varð Landsmótsmeistari og Golfklúbbur Akureyrar varð í öðru sæti. 

Lið Leynis var þannig skipað: 
Kári Kristleifsson, Tristan Freyr Traustason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Nói Claxton og Bjarki Brynjarsson. 

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?