Alls bárust sex tilboð í viðhald gatna og stíga á árinu 2025 hjá Akraneskaupstað. Ekki kemur fram í hvaða verkefni verður ráðist í framhaldinu. 

Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var rétt rúmlega 179,5 milljónir kr. 

Fimm af þessum sex tilboðum voru undir kostnaðaráætlun. 

Keilir ehf bauð lægst eða rétt tæplega 135 milljónir kr. sem er um 25% undir kostnaðaráætlun. 

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að fela sviðstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda með fyrirvara um að tilboðið uppfylli öll skilyrði útboðsins.

Eftirfarandi tilboð bárust: 

  • Keilir ehf – 681294-4659: 134.735.000 kr.

  • Þróttur ehf – 420369-3879: 156.258.900 kr.

  • Emkan ehf – 481002-2140: 159.600.000 kr.

  • Gleipnir Verktakar – 691208-0950: 167.000.000 kr.

  • Fagurverk – 650116-0460: 172.995.000 kr.

  • Lóðaþjónustan – 640502-2580: 209.277.000 kr.
  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?