Samfélagið á Akranesi stækkar með hverju árinu sem líður. Það sem af er þessu ári hefur íbúum á Akranesi fjölgað jafnt og þétt. 

Í nýjustu upplýsingum um mannfjölda á Íslandi sem birtur er á vef Hagstofu Íslands kemur fram að íbúar á Akranesi voru alls 8.380 í þann 1. júlí 2025.

Aukningin það sem af er árinu 2025 eru 90 einstaklingar – eða 1,08 % aukning.

Til samanburðar þá voru rétt rúmlega 900 íbúar á Akranesi fyrir rúmlega 100 árum eða árið 1920.

Frá árinu 1998 hefur íbúum fjölgað um 3.255 einstaklinga en árið 1998 voru íbúar á Akranesi alls 5.125 en eru í dag 8.380.

Á þessu tímabili sem nær aftur til ársins 1998 hefur það aðeins gerst þrívegis að íbúum hafi fækkað á Akranesi á milli ára – og slíkt hefur ekki gerst frá árinu 2012.

Mesta fjölgunin á einu ári var árið 2008 þegar aukning var 425 íbúar

Árið 1880 voru rétt tæplega 500 íbúar á Akranesi og það var ekki fyrr en árið 1930 að íbúar á Akranesi fóru yfir 1000.

Mesta fjölgun á einum áratug var á milli 1950-1960 en á þeim tíma fjölgaði íbúum um 1245.

Á árunum 2000-2010 kom annar slíkur vaxtarkippur á Akranesi þegar 1209 íbúar bættust við á íbúaskrá bæjarins á einum áratug.

Á árunum 1980-1990 var lítil fjölgun á Akranesi og íbúafjöldinn var nánast sá sami í heilan áratug eða um 5.200.

Þróun íbúafjölda á Akranesi 1998-2025 er hér neðst í fréttinni.

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?