Tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGI fer fram laugardaginn 25. október og er dagskráin fjölbreytt.
Í tilkynningu kemur fram að 13 listamenn/hljómsveitir komi fram að þessu sinni en hátíðin er hluti af menningarhátíðinni Vökudögum á Akranesi.

Listamenn og hljómsveitir spila tvisvar sinnum á þessu kvöldi en hátíðin fer fram í 12 mismunandi húsum.
Það er spilað í HEIMA-húsum Skagafólks;
Skólabraut 20 (Guðni og Lilja)
Vesturgata 45 (Kristján og Margrét)
Háteigur 6 (Angela og Benedikt)
Vesturgata 32 (Ingibörg og Haraldur)
Háteigur 16 (Inga og Ketill)
Grundartún 8 (Elfa og Pálmi)
…en líka t.d í Bíóhöllinni, Í brugghúsi Bárunnar (Roð – Bárugata 21) í Akraneskirkju, og í einu af húsum fyrirtækisins KAPP (Skaginn) sem er einn af styrktaraðilum hátíðarinnar, á rakarastofu Hinna (sem er líkast til í minnsta húsi Akraness) – JÁ OG Í GAMLA ArnArdAl! (Kirkjubraut 48) Þar verða armböndin líka afhent á hátíðardag frá kl. 13.00-17.00 og þar verður ýmislegt skemmtilegt í gangi – matur og myndlist, POP-UP vinyl-markaður ofl.
HEIMA-SKAGI er einstök hátíð þar sem nándin við listafólkið er mjög mikil. Fyrsta HEIMA-SKAGA hátíðin var haldin 2019 með sex atriðum og það hefur alltaf selst upp.
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm munu opna hátíðina á lágstemmdum nótum í kirkjunni klukkan 18.30 þar sem hátíðin verður formlega sett með stuttri athöfn.
Síðan byrja tónleikar hér og Þar klukkan 19.00 og standa til 22.30.
Lokatónleikar HEIMA-SKAGA í ár verða í Bíóhöllinni frá 22.45-??
MIÐAHAFAR FÁ AFHENT ARMBÖND og prentaða dagskrá í gamla Arnardal (Kirkjubraut 48) á hátíðardag frá 13.00 – 17.00
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?







