Klifurfélag Akraness hefur fengið nýja aðstöðu í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Klifurveggur félagsins var tekinn í notkun um liðna helgi.
Félagið hefur lengst af verið með aðstöðu á Smiðjuvöllum en félagið hefur starfað í sjö ár – og s.l vor stunduðu rúmlega 40 börn skipulagðar æfingar.

Nýja aðstaðan er mun rúmbetri en á Smiðjuvöllum.
Forsvarsfólk félagsins gerir sér vonir um að ný aðstaða muni efla starfið enn frekar.
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?








