Á morgun miðvikudag 17. sept. milli kl. 09:00-20:00 verður malbikað á Hringveginum framhjá Kúludalsá á Akrafjallsvegi. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Lokað verður á milli hringtorgs við Hvalfjarðargöng og Akrafjallsveg í norðurátt.

Hjáleið verður um Akrafjallsveg sunnan og norðan Akrafjalls. Þeir sem eiga erindi á Grundartanga verður hleypt í gegnum lokun að norðanverðu.
Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og sýna aðgát og tillitssemi.
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?