Skagamaðurinn Arnar Gunnlaugsson, hefur valið lið sitt fyrir næstu tvo leiki A-landsliðs karla í undankeppni HM 2026. Ísland mætir Úkraínu þann 10. október og Frakkar eru mótherjar Íslands mánudaginn 13. október. Leikið er á Laugardalsvelli.
Fjórir leikmenn sem hafa leikið með yngri flokkum ÍA og meistaraflokki félagsins eru í hópnum – líkt og í síðustu tveimur leikjum Íslands.
Þeir eru Bjarki Steinn Bjarkason, Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson.

Ísland er í öðru sæti riðilsins með þrjú stig eftir tvo leiki. Frakkland er í efsta sæti með sex stig og Úkraína í því þriðja ásamt Aserbaísjan með eitt stig.
Hópurinn er þannig skipaður:
- Elías Rafn Ólafsson – FC Midtjylland – 9 leikir
- Hákon Rafn Valdimarsson – Brentford F.C. – 20 leikir
- Anton Ari Einarsson – Breiðablik – 2 leikir
- Logi Tómasson – Samsunspor – 10 leikir, 1 mark
- Mikael Egill Ellertsson – Genoa CFC – 23 leikir, 1 mark
- Aron Einar Gunnarsson – Al-Gharafa SC – 107 leikir, 5 mörk
- Daníel Leó Grétarsson – Sonderjyske Fodbold – 26 leikir
- Sverrir Ingi Ingason – Panathinaikos F.C. – 61 leikur, 3 mörk
- Guðlaugur Victor Pálsson – AC Horsens – 52 leikir, 4 mörk
- Bjarki Steinn Bjarkason – Venezia FC – 7 leikir
- Gísli Gottskálk Þórðarson – Lech Poznan
- Ísak Bergmann Jóhannesson – 1. FC Köln – 37 leikir, 6 mörk
- Andri Fannar Baldursson – Kasimpasa S.K. – 10 leikir
- Stefán Teitur Þórðarson – Preston North End F.C. – 32 leikir, 1 mark
- Albert Guðmundsson – ACF Fiorentina – 42 leikir, 11 mörk
- Kristian Nökkvi Hlynsson – FC Twente – 6 leikir, 1 mark
- Hákon Arnar Haraldsson – LOSC Lille – 24 leikir, 3 mörk
- Þórir Jóhann Helgason – U. S. Lecce – 20 leikir, 2 mörk
- Jón Dagur Þorsteinsson – Hertha BSC – 48 leikir, 6 mörk
- Mikael Neville Anderson – Djurgardens IF Fotboll – 35 leikir, 2 mörk
- Andri Lucas Guðjohnsen – Blackburn Rovers F.C. – 36 leikir, 10 mörk
- Brynjólfur Andersen Willumsson – FC Groningen – 3 leikir, 1 mark
- Sævar Atli Magnússon – SK Brann – 7 leikir
- Daníel Tristan Guðjohnsen – Malmö FF – 2 leikir