Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands afhentu HVE nýtt BiPAP öndunaraðstoðartæki, sem mun nýtast sjúklingum á lyflækningadeild Akraness. Tækið hjálpar sjúklingum með öndunarvanda og styrkir mikilvæga þjónustu HVE.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 

Söfnunin fyrir tækinu hefur gengið afar vel og viljum við í stjórn samtakanna færa öllum styrktaraðilum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum innilegar þakkir.

Höfðinglegt framlag barst að fjárhæð 1.000.000 kr. frá Gísla Stefáni Jónssyni ehf. ásamt framlagi sömu fjárhæðar frá aðila sem ekki vil láta nafn síns getið.

Jafnframt hafa borist stór og minni framlög og vilyrði frá Akraborg ehf., Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Verkalýðsfélagi Akraness, Blikksmiðju Guðmundar ehf, Bjarmar ehf., Lionsklúbbi Akraness, Lionsklúbbnum Rán Ólafsvík og Skagabros slf. ásamt stuðningi frá tæplega 300 félagsmönnum sem hafa greitt árgjald sem er 3.000 kr.

Við í stjórn erum afar þakklát fyrir samstöðuna og þá rausn sem samfélagið sýnir. Það er ljóst að við á Vesturlandi styðjum þétt við bakið á HVE. Með sameiginlegu átaki tryggjum við betri aðbúnað og öflugri heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi.

Hollvinasamtökin komin á almannaheillaskrá Skattsins

Samtökin hafa nýverið fengið skráningu á almannaheillaskrá Skattsins, sem þýðir að einstaklingar og fyrirtæki geta nú fengið skattfrádrátt vegna gjafa og framlaga til samtakanna. Sem dæmi geta hjón fengið allt að 700.000 kr. frádrátt til lækkunar á útsvars- og tekjuskattstofni. Frádráttur getur mest orðið 1,5% af rekstartekjum hjá fyrirtækjum og rekstaraðilum.