Skagamaðurinn Jón Valur Ólafsson og dóttir hans Maren Ýr fara á kostum í söngjóladagatali í sem birt er á héraðsfréttamiðlinum Firdaposten í Noregi.

Lagið heitið „Et lys imot mørketida“ eða „Ljós gegn skammdeginu.“

Jón Valur er búsettur í Noregi en hann flutti frá Íslandi þegar hann var tvítugur.

Jón Valur á þrjú systkini á Íslandi og tvö þeirra eru búsett á Akranesi. Hallgrímur Ólafsson leikari er elstur eða „Halli Melló“. Gunnar Hafsteinn eða Gunni Hó, matreiðslumaður / pílukall, og Guðný Birna eru bæði búsett á Akranesi.

Foreldrar þeirra eru Sigþóra Gunnarsdóttir og Ólafur Hallgrímsson.